NPGI býður upp á óháðar HIC-prófanir í samræmi við EN 1177:2018, evrópskan staðal fyrir mælingar á höggdeyfingu á yfirborðsflötum á leikvöllum. Þessi þjónusta tryggir að yfirborðsfletir þjóni tilgangi sínum og séu í samræmi við reglugerðir og dragi þannig úr alvarlegum höfuðáverkum ef óhöpp verða.
HIC-prófun er nauðsynlegur öryggisþáttur, sérstaklega á nýjum leiksvæðum, há-áhættusvæðum og við reglubundna skoðun fallsvæða.
Hvað er HIC-prófun?
HIC (e. Head Injury Criterion) er vísindalega þróuð aðferð sem er notuð til að mæla höggdeyfingu yfirborðsflata á leikvöllum. Samkvæmt EN 1177:2018 er yfirborð prófað til þess að meta tvö lykilgreinimörk:
HIC ≤ 1.000
gmax ≤ 200 g (hámarkshröðun)
Þessi greinimörk gefa til kynna hversu vel yfirborðið getur dregið úr hættu á lífshættulegum höfuðáverkum við fall. Yfirborð sem mælist utan þessara marka gæti veitt minni vörn en vænst er og grípa verður til aðgerða.
Hvenær er HIC-prófun nauðsynleg?
HIC-prófun ætti að íhuga við eftirfarandi aðstæður:
Áður en nýr leikvöllur er opnaður almenningi
Sem hluti af skoðun eftir uppsetningu leiktækja
Við árlegt frammistöðueftirlit og skoðanir vegna reglufylgni
Þegar yfirborðsflötum hefur verið skipt út, gert hefur verið við þá eða þeir sýna merki um slit
Sem viðbragð við alvarlegu óhappi eða slysi
Til að staðfesta reglufylgni vegna tryggingar leikvallarins eða í öðrum lagalegum tilgangi
Svona fer prófunin fram
HIC-próf eru fallprófanir sem við framkvæmum bæði í rannsóknarstofu og á staðnum, eins og skilgreint er í EN 1177:2018:
Aðferð 1 – Ákvörðun á markhæð falls (CFH)
Fer fram í rannsóknarstofu eða stýrðu umhverfi til að ákvarða hámarksfallhæð sem yfirborð getur tekið við á öruggan hátt.
Aðferð 2 – Frammistöðuprófun á staðnum
Prófar frammistöðu yfirborðsflata við raunverulegar aðstæður svo hægt sé að meta áhrif veðurs, notkunar og ástands búnaðarins. Hentar þegar meta þarf ástand leiksvæðisins eða áframhaldandi notkun þess.
Hvað er innifalið?
Vottuð HIC-prófun felur í sér:
Prófanir á nokkrum mismunandi stöðum þar sem mikil umgengni/notkun er
Fallprófanir með búnaði sem uppfyllir skilyrði EN 1177-staðalsins
Mælingu á bæði HIC- og gmax-gildum
Mat á markhæð falls þar sem það á við
Heildarskýrslu með niðurstöðum ásamt myndrænni framsetningu gagna og túlkun sérfræðinga
Faglegar ráðleggingar varðandi viðgerðir eða endurnýjun ef eitthvað reynist ekki í samræmi við staðla
Þá skoðum við einnig hvort raki, þjöppun og/eða ólík efnisnotkun sé til staðar sem gæti haft áhrif á eiginleika yfirborðsins.
Efni sem við yfirborðsprófum
Við getum prófað allar gerðir af höggdeyfandi yfirborðsefnum, þar á meðal:
Blautgúmmífyllingu og samsett gúmmí
Gúmmíflísar og -hellur
Viðartrefjablöndur
Trjábörk, mold og viðarflísar
Sand, möl og náttúrulegan jarðveg
Blandað yfirborð og einingakerfi
Af hverju að velja NPGI?
NPGI notar háþróaðan prófunarbúnað, fer að fullu eftir ISO/IEC 17025-kvörðunarreglum og skilar nákvæmum, endurteknum HIC-niðurstöðum sem standast skoðun tryggingafélaga, eftirlitsaðila og dómstóla.
Við framkvæmum óháðar prófanir á öryggi yfirborðsflata fyrir sveitarfélög, skóla, húsfélög og leiktækjaframleiðendur.